Á blíðviðrisdögum (og jafnvel í roki og rigningu) má oft rekast á þennan vin okkar allra, Þórð Arnar Marteinsson, spila á mannamótum og veitingastöðum. Hann er aufúsugestur á heilsustofnunum eldri borgara, fyrirtækjakynningum, mannamótum og jafnvel opnun sýninga af ýmsu tagi. Alltaf svo ljúfur í framkomu og fasi – og alltaf jákvæður þegar hann er beðinn um að spila. Það er sannarlega happ fyrir Hafnarfjörð að eiga slíkan öðling. Ég var að þvælast einn laugardag fyrir nokkrum árum í nágrannasveitarfélagi okkar á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu, þegar ég rakst á Þórð og ungan frænda hans, búsettum í Danmörku og tók upp smá spilerí. Inn á milli eru svipmyndir af grænkeramarkaði á Thorsplani teknar sama dag.
Af handahófi
Halli frjálsi og Guðmundur Rúnar skoða Frjálsíþróttahús FH
Haraldur Magnússon, Halli frjálsi, sá draum sinn rætast um glæsilegt frjálsíþróttahús í Kaplakrika. Rétt fyrir vígslu hússins hittust þeir Halli og Guðmundur Rúnar Árnason,...






