Föstudagur, júní 27, 2025
HomeStiklur í tímaröðStiklur 1990-1999Vesturkot brennt í árslok 1992

Vesturkot brennt í árslok 1992

-

Myndbandsstiklan sýnir göngu félagsmanna Keilis frá nývígðu félagsheimili sínu á Hvaleyrarholti að því gamla, Vesturkoti, til að brenna það.

Stiklan er í lengra lagi, en mig grunar að marga langi að sjá vel stemninguna og andlitin sem þarna birtast. Auk Gústa Húbertssonar framkvæmdastjóra Keilis eru þarna meðal annars Hálfdan Þór Karlsson þáverandi formaður, Guðjón Sveinsson sem var formaður þar á eftir, Halldór Halldórsson, Þröstur og stjórnarmaður í Keili með skegg!, Árni Hjörleifsson bæjarfulltrúi, bræðurnir Ingimar og Guðmundur Haraldssynir, Helgi Gunnarsson rafvirki og Sveinn Sigurbergsson, kaupmaður í Fjarðarkaupum, en faðir hans, Sigurbergur Sveinsson var einmitt einn af stofnendum golfklúbbsins Keilis.

Þá eru nokkrir sómamenn, og sómkonur, sem kvatt hafa frá því þessar myndir voru teknar s.s. Steingrímur Guðjónsson prentari í Steinmark, Kristín Pálsdóttir heilsugæslulæknir, Gísli Sigurðsson ritstjóri Lesbókar Morgunblaðsins, Þorsteinn Jónsson flugkappi og Þorsteinn Kristinsson endurskoðandi og sjoppukóngur við Hringval. Og fleiri og fleiri.

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here

- Advertisment -
Google search engine

Af handahófi