Föstudagur, júní 27, 2025
HomeStiklur í tímaröðStiklur 2010-2019Verkefninu Brúkum bekki hleypt af stokkunum 24.06.2013.

Verkefninu Brúkum bekki hleypt af stokkunum 24.06.2013.

-

Brúkum bekki er frábært verkefni unnið að frumkvæði Öldungaráðs, Félags eldri borgara í Hafnarfirði og Félags sjúkraþjálfara í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ. Í gær (24. júní 2013) var verkefninu formlega hleypt af stokkunum en tilgangur þess er að stuðla að aukinni hreyfingu eldri borgara með því að bæta aðstæður til gönguferða í nærumhverfi bæjarbúa. Athöfnin fór fram í félagsstarfsemi Félags eldri borgara í Hafnarfirði.

Í tengslum við verkefnið hefur umhverfis- og framkvæmdasvið bæjarins teiknað upp sérstakt göngukort af þeim svæðum sem ætlunin er að leggja áherslu á. Búið er að kortleggja 3 leiðir (í þessum áfanga) og verða bekkir sem þessir staðsettir með reglulegu millibili svo hægt sé að setjast niður og hvílast. Miðað er við að ekki sé lengra 2-300 metrar á milli bekkja.

Gylfi Ingvarsson formaður Öldungaráðs setti verkefnið formlega af stað og bauð gesti velkomna. Skipuleggjendur verkefnisins hafa leitað eftir stuðningi fyrirtækja og félagasamtaka í Hafnarfirði við verkefnið og hafa viðtökurnar verið mjög góðar. Nú þegar hefur fjöldi fyrirtækja og félagasamtaka gerst aðilar að verkefninu og styrkt kaup nýrra bekkja og hefur Hafnarfjarðarbær einnig keypt 10 nýja bekki í tengslum við verkefnið. Í sumar verða settir niður 28 nýjir bekkir í tengslum við verkefnið en gert er ráð fyrir að áfram verði unnið að því að byggja upp gönguleiðanetið í bænum og bæta aðstæður til gönguferða í framhaldi af þessum fyrsta áfanga. Þá er einnig gert ráð fyrir að Landsbjörg muni hnitmerkja hvern bekk, en með því móti er ætlunin að bæta enn frekar öryggi þeirra sem nýta gönguleiðirnar sér til heilsubótar.

Einnig var leitað til Iðnskólans í Hafnarfirði um samstarf um hönnun bekkja sem hægt væri að nota á svæðum eins og við Ástjörn og Hvaleyrarvatn og tæki mið af umhverfinu og hefur það verið sett inn í námskrá og verður áfram í vinnslu á næstu önn.

Texti og ljósmynd af síðunni Bærinn okkar, ábm. Samfylkingin í Hafnarfirði.

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here

- Advertisment -
Google search engine

Af handahófi

Jon Thor Gíslason sýnir á Kaffi Mokka.

0
Hafnfirski istmálarinn Jón Thor Gíslason, hefur dvalið mest af sínum náms- og starfsferli í Þýskalandi, en kemur öðru hvoru heim til að sýna, sækja...