Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, sem fagnar 75 ára afmæli sínu á þessu ári, meðal annars með tvennum stórtónleikum í Íþróttahúsinu við Strandgötu, laugardaginn 5. apríl nk, hefur lengi ríkt sú hefð að kennarar skólans myndi með sér hljómsveitir og komi fram. Í byrjun aldarinnar var til að mynda starfandi Dixieland-sveit, sem lét mikið að sér kveða, spilaði meðal annars á Björtum dögum. Einnig hefur aðstoðarskólastjórinn Stefán Ómar Jakobsson, smalað saman liðtækum samkennurum til að leika á stríðsáraballi í Gúttó, og sextett til að leika undir á tjútt-böllum. Hér leiðir hann swingsextett sinn í lagi sem oft heyrðist á Gufunni í gamla daga, í óskalagaþáttum sjúklinga og sjómanna, „Því ertu svona uppstökk?“. Lag og texti er eftir annan fjölhæfan snilling, Ólaf Gauk Þórhallsson, en ljúflingurinn Björn R. Einarsson söng lagið til vinsælda með sextett þess fyrrnefna árið 1991.