Á Þorláksmessu er venja margra að sækja skötuveislu. Á Þorlák 2014 kíkti ég í Fjörukrána og Kænuna og ræddi við kátt og skemmtilegt fólk. Þessi stikla hefur oft birst áður, en margir hafa gaman að skoða, óháð árstíma. Ekki síst vegna vinar okkar allra Friðriks Inga Oddsonar sem ég átti stutt spjall við.
Gleðilega hátíð Fiddi minn, hvar sem þú ert staddur. Vonandi er skata þar og gyllt í glasi svo ekki þurfir þú að sötra appelsínudjús.