Föstudagur, júní 27, 2025
HomeÓflokkaðDýri Guðmunds og Bjössi Sax flytja sumarlög í Göngum saman.

Dýri Guðmunds og Bjössi Sax flytja sumarlög í Göngum saman.

-

Dýri Guðmunds­son, löggiltur end­ur­skoðandi, tón­list­armaður og fv. landsliðsmaður í knatt­spyrnu, lést á Hrafn­istu í Hafnar­f­irði 20. fe­brú­ar síðastliðinn, 72 ára að aldri. Dýri hafði glímt við erfið veikindi síðustu ár, en setti svip á umhverfi sitt með glaðværð og söng allt undir það síðasta. Oft kíkti hann í Hafnarfjörðinn, enda alinn upp við Lækinn, gekk í Barnaskóla Hafnarfjarðar sem svo hét þá, og lék knattspyrnu, meðal annars í FH í yngri og eldri flokkum. Hann kom oft fram með FH-bandinu þar sem hann mundaði gítarinn og söng manna mest, enda söngvinn mjög og hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Í göngu hjá Göngum saman-hópnum myndaði ég Dýra þegar hann hitaði göngumenn upp með Summerstime Gerswins, og svo gengu menn, konur og kvár, fylktu liði undir í Lóan er komin.

Gunnhildur Óskarsdóttir háskólakennari stofnaði Göngum saman hreyfinguna til að efla þá sem höfðu greinst með krabbamein og til að safna fé til rannsókna og þróunar meðferða og lyfja til að vinna á þessum vágesti. Gunnhildur og Anna Kristín kona mín kynntust í veiðiferð norður í Aðaldal, en þær voru valdar ásamt stórum hópi kvenna sem nýlokið höfðu brjóstakrabbameinsmeðferð. Framtakið var af erlendri fyrirmynd, en hlaut nafnið Kastað til bata hér á landi, en í ljós hafði komið við rannsóknir, að þessi hreyfing að kasta fyrir fisk flýtti fyrir bata eftir aðgerð. Þetta varð upphafið að ævilangri vináttu nokkurra kvenna sem voru í sömu sporum, en nokkrar þeirra eru nú látnar eftir hetjulega baráttu, Anna fyrir tveimur árum, og Gunnhildur á síðasta ári. Gunnhildur var mikil atorku- og baráttukona, og tókst með góðri hjálp annarra félaga í Göngum saman, að efna til árlegrar fjöldagöngu um allt land og safna mörgum tugum milljóna til rannsókna.

Um félagið og baráttukonuna Gunnhildi má fræðast í fallegri heimildarmynd hafnfirðingsins Páls Kr. Pálssonar, en hún hefur verið sýnd á RÚV og er aðgengileg á netinu, sennilega á krabb.is.

Það er mikill sjónarsviptir af þessum indælu manneskjum. Ég held hreinlega að allir sem kynntumst þeim Dýra og Gunnhildi – í ólíkum hlutverkum þó – sakni þeirra sárt. – Halldór Árni.

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here

- Advertisment -
Google search engine

Af handahófi

Stebbi blóma fagnar sextugsafmæli við Fjörukrána 2012

0
Einn þeirra sem settu mestan svip á bæjarlífið á árum áður, var blómasalinn Stefán Hermanns, oftast kenndur við blómabúð sína, Stefánsblóm. Stefán var vinamargur...

Öskudagsgleði