Í þessum þætti er litið inn á 1000. fund Hafnarstjórnar Hafnarfjarðar sem haldinn var í Kænunni föstudaginn 8. apríl 1994. Fundarstjóri var Ingvar Viktorsson þáverandi bæjarstjóri – og þar með hafnarstjóri – en hann kynnti nýráðinn framkvæmdastjóra hafnarinnar, Má Sveinbjörnsson. Til máls tók Guðrún Lárusdóttir, útgerðarkona Stálskipa, og ég ræddi við formann hafnarstjórnar, Eyjólf heitinn Sæmundsson.
Í þættinum er einnig kvikmyndaspjall Ásgeirs Long, en hann ræddi við mig í nokkrum þáttum um stórmerkilegan feril sinn og gaf mér leyfi til birtingar á nokkrum perlum úr safni sínu. Þessar stiklur Ásgeirs voru án nokkurs vafa vinsælast efni þessara þátta minna sem sýndir voru 1992-4 á Sjónvarpsstöðinni Sýn. Í þetta sinn klippti hann til búta úr Vélsmiðju Hafnarfjarðar, frá því hann vann þar um miðbik síðustu aldar, og las svo upp texta til að segja frá skemmtilegum mannskap í Smiðjunni.
Á laugardeginum 9. apríl kíkti ég á kynningarfund framboðslista Kvennalistans í Hafnarfirði, en þá voru sveitarstjórnarkosningar framundan, og svo á kynningardag Iðnskólans í Hafnarfirði, þar sem félagi minn, Sæmundur Stefánsson, ræddi við aðstoðarskólastjóra Iðnskólans, Jóhannes Einarsson.
Þættinum var svo sjónvarpað á Sýn á sunnudeginum 10. apríl, svo það þurfti að hafa hraðar hendur. Vilhjálmur Þór Guðmundsson félagi minn, leysti mig oft af við myndavélina, en sjálfur sá ég um dagskrárgerð, klippingu og hljóðsetningu. Þetta kostaði oft þó nokkrar vökur að klára þættina á réttum tíma, með frumstæðari búnaði en tíðkast í dag. Og oft var ég kominn upp í útsendingarsvítu 365 veldisins örfáum mínútum fyrir útsendingu. En mikið lifandis ósköp var þetta gaman.
Halldór Árni.