Föstudagur, júní 27, 2025
HomeStiklur í tímaröðStiklur 1983-1989Svipmyndir frá 75 ára afmæli Hafnarfjarðar 1983

Svipmyndir frá 75 ára afmæli Hafnarfjarðar 1983

-

Á 75 ára afmæli Hafnarfjarðarkaupstaðar 1983, var boðið til vikulangrar afmælisveislu, og starfrækt var á sama tíma – í fyrsta sinn – Útvarp Hafnarfjörður. Á afmælisdeginum, 1. júní, var öllum bæjarbúum boðið til afmælisveislu í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þar voru fluttar afmæliskveðjur og ræður og nokkrir bæjarfulltrúara trommuðu upp með gamanbrag um bæjarstjórnina (sjá annað myndband hér á síðunni), Síðar á dagskránni voru tónlistaratriði hafnfirsks tónlistarfólks. Meðal þeirra sem koma fram í þessari stiklu eru söngvinkonurnar Ingveldur Ólafsdóttir og Jóhanna Linnet, sem einnig störfuðu í tríói með Gunnari heitnum Friðþjófssyni, en einnig hafa þær alið af sér tónlistarfólk í fremstu röð.

Við tekur bútur úr tískusýningu hafnfirskra fyrirsætna. Þá má sjá Dansbandið með Kristján Hermannsson og Svein Guðjónsson í fararbroddi ásamt bróður Svenna, Gunnar Guðjónsson á bassa (eða er þetta Ágúst Ragnarsson?), Gunnar heitinn Ársælsson, oft kenndan við hljómsveitina Bendix og söngkonuna Önnu Vilhjálms. Þau flyttu m.a. gamla Connie Francis lagið „Lipstick on your collar“. Frekar lítil gæði voru á þessum árum í myndbandstökum og hljóðupptakan ekki sérlega góð, en ekki sést í trommuleikarann, sem sennilegast er Svavar Ellertsson sem áður spilaði með Laufinu. Samt má hafa gaman af því að skoða þessa ræmu, ekki síst vegna andlita ungra Gaflara á þessum tíma.

Að lokum má sjá hljómsveit skipaðri þeim Jóni Þór Gíslasyni söngvara, gítarleikara og hljómborðsleikara, Smára Eiríkssyni (Smith) á trommur, Gylfa Hilmissyni á gítar en bassaleikarann sé ég ekki (líklegast er það Hafsteinn Valgarðsson, sonur Valla rútubílsstjóra og hennar Mæju sem seldi Clinton pylsuna á Bæjarins bestu í den). Seinna lagið sem þeir flytja er vinsæll smellur Lindsay Buckingham úr Fleetwood Mack, Touble.

Halldór Árni.

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here

- Advertisment -
Google search engine

Af handahófi

Jon Thor Gíslason sýnir á Kaffi Mokka.

0
Hafnfirski istmálarinn Jón Thor Gíslason, hefur dvalið mest af sínum náms- og starfsferli í Þýskalandi, en kemur öðru hvoru heim til að sýna, sækja...