Föstudagur, júní 27, 2025
HomeSjónvarpsþættirÍ öllum bænumÍ öllum bænum, 1. þáttur 2014

Í öllum bænum, 1. þáttur 2014

-

Í þessum þætti skruppum við Arndís Halla í jólagöngu um bæinn, vorum í jólaguðsþjónustu í Fríkirkjunni sem hafði fagnað 100 ára afmæli sínu fyrr á árinu. Jóhannes Reykdal reisti kirkjuna, en við Steinunn Guðnadóttir skruppum í aldaafmæli Elísabetar Reykdal dóttir hans, og ræddum við hana og við sjáum af því spjalli.

Við fylgdumst með kjöri íþróttakonu og íþróttakarli Hafnarfjarðar 2013, kveiktum á jólatrénu á Thorsplani þar sem Arndís fór upp á háa C-ið. Við litum í heimsókn í handverkshúsið Gáru við Flensborgarhöfn og ræddum við leirlistarkonurnar á verkstæðinu.

Okkur var boðið að skoða nýtt frjálsíþróttahús FH, og ræddum við formanninn, Viðar Halldórsson, og formann byggingarnefndar, Gunnar Svavarsson, sem hefur haldið áfram að byggja stór hús eins og kunnugt er.

Að lokum mynduðum við opnun yfirlitssýningu listakonunnar Rúnu, sem Arndís ræddi við, en Halldór vinnur einmitt að heimildarmynd um Rúnu.

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here

- Advertisment -
Google search engine

Af handahófi

Helgi Hós og Palli Lamba

0
Allir sem vettlingi gátu valdið fjölmenntu í glæsilega 200 ára afmælisveislu Reykjavíkurborgar 18. ágúst 1986 - líka Hafnfirðingar. Þegar staulaðist með níðþunga Hitachi lampamyndavélina...

Öskudagsgleði